Í kjölfar DV farsans langar mig að koma með eftirfarandi staðhæfingu….

Íslendingar eru Rollur

Við látum smala okkur saman á meðan smalahundarnir glefsa stöðugt í okkur til að reka okkur áfram - og okkur er alveg skítsama.

Svo einstaka sinnum snýr ein rollan sér við og er með stæla á meðan hinar rollurnar jarma fyrir aftan.. vita ekkert endilega afhverju þær eru að jarma, gera það bara afþví að hinar rollurnar eru að gera það.

Svo eftir smástund fellur allt í ljúfa löð, rollurnar láta aðra segja sér fyrir verkum og gleyma “byltingunni” ástæðum hennar o.s.frv.

Svo nokkrum mánuðum seinna snýr önnur rolla sér við - við hinar jörmum með……. o.s.frv o.s.frv.


Meeeeeeeeeeeeeeeeeeeeee