Ooooh hvað ég þoli ekki svona þröngsýnt fólk sem heldur að tölvuleikir séu vondir…

Ég t.d. spila Punisher, God of war og GTA. Eina ofbeldisfyllstu leiki sem til eru og ég hef ekki hlotið neinn skaða af því. T.d myndi ég ekki byrja að skjóta fólk úti á götu bara því ég geri það í tölvuleik, ég myndi heldur ekki stela bíl bara því ég geri það í tölvuleik og ég myndi ekki binda keðjur við sverð og byrja að sveifla þeim í allt og alla…

Tölvuleikir gera fólk ekki heimskt og árásargjarnt… Ég spila t.d tölvuleiki mjög mikið og ég hef ekki hlotið neinn skaða af því, t.d. gengur mér bara vel í skólanum og ég er ekkert árásargjarn…

Staðreyndin er… !!!TÖLVULEIKIR DREPA EKKI FÓLK, FÓLK DREPUR FÓLK!!!

Endilega segið álit ykkar á þessu máli…