Nei það vill engin nokkur maður hér á þessari litlu plánetu okkar sem við köllum Jörðin.

En samt sem áður hafa fæðst margir þrýstihópar og samtök hér á þessari jörðu okkar. Þessir hópar hafa það sameiginlegt að nota sínar aðferðir til að koma sinni hugmyndafræði áleiðis til almennings, hvort sem þær aðferðir voru réttmætar og löglegar læt ég ykkur um að dæma.

Tökum sem dæmi ef Adolf Hitler hefði tekist sitt ætlunarverk að leggja heiminn undir sig og gera sína trú og sannfæringu að alheims-algjörlega-einu-sönnu-stefnu og hver sem væri henni mótfallinn væri án tafar tekin af lífi af Einsertzgruppen eða Drápssveitum hans!

Ég tek vissulega svolítið ýkt dæmi hérna en því miður er sama rumma að gerast í okkar samfélagi hérna í dag!!!

Það er viss hópur sem er að þrýsta á vissa menn hérlendis til að óhlíðnast og bregðast sínu trausti gagnvart þeirra yfirmanni!
Þeirra yfirmaður hefur sett þeim vissar reglur, boð og bönn og hvernig þeir eigi að haga sér í sínu starfi.

Þessi íslenski hópur hefur vægast sagt vaxið fiskur um hrygg undanfarin ár svo að ekki sé með neinum orðum ofaukið hér. Þessi hópur hefur lagt fyrir sér vissa stefnu sem kallast “Mannréttindi”

Þessi hópur hefur unnið marga og mjög góða sigra sem eru þeim svo réttlátanlegir og eðlilegir að öll íslenska þjóðin hefur staðið saman sem ein við bak þeirra sem er eins og segir mjög gott.

Nema eitt…

Þessi hópur er enn ekki ánægður og vill þvinga sinn rétt inn á þá menn sem hafa ekki það vald, umboð né réttindi til að gera það sem þessi hópur fer fram á!

Þar af leiðandi er þessi hópur sem fer fram á sín Mannréttindi orðin svokallaður þrýstihópur og hann því miður hefur unnið sér á sitt band vissa þingmenn sem hafa forkastað þessa tryggu menn sem eru trúir sínum yfirmanni fyrir það að vera ekki í takt við tímann og vægast sagt vera bara með gamaldagshugmyndir, þeir hlusta ekki á hvað nútíðin vill og fer fram á!

En sem betur fer höfum við fólk hérna á þessari jörð sem hefur þor, hugrekki og þrek til að standa á sínum skoðunum og láta ekki undan neinu einelti og andlegu ofbeldi, rétt eins og Nasistar beittu öllum þeim sem voru þeim á móti!

Þessir góðu og tryggu menn sem þurfa að þola þessi ömurlegu ummæli þingmanna okkar Íslands, þola einelti sem varðar við það sama og Gyðingar sættu af Nasistum, þola þrýsting um það að þeim beri að brjóta þau boð sem þeim voru sett að sínum yfirmanni sem er Guð og þar sem Guð segir með hreinum og beinum orðum um það að hann fyrirlítur samkynhneigð og það sé honum VIÐURSTYGGÐ er karlmaður leggst með öðrum karlmanni sem kona væri!!! Í sömu setningu í lögbók þessara tryggu manna stendur að Guði finnst það svívirðing er menn saurgast með skepnum! Þarf eitthvað að segja meira???

Ég þoli ekki ofbeldi í neinu formi, samkynhneigðir og þingmenn okkar geta EKKI þvingað Presta okkar til að Óhlíðnast þeirra yfirmanni sem hefur sett þeim svo skýr og mjög svo greinileg lög!

Ég vona að þið öll skilji mitt sjónarmið hér og um leið fagna ég þess að samkynhneigðir megi ættleiða börn!
Ég sjálfur er einstæður faðir og ég hef margoft hugsað til þess að það er án efa gott að barn eða börn alist upp í hamingju og sannri ást tveggja manna eða kona!
Ég skil ykkar málsstað í hvívetna og styð hann, enn aðeins og á meðan þið skiljið minn málsstað!!!

Ef þið getið ekki skilið lögmál míns yfirmanns er ég tilhneigður til að snúast gegn ykkar málsstað og velferð þrátt fyrir að Jesús hafi boðað ný lög varðandi að bjóða hinn vagnann…

Ég boða umhyggju og umburðarlindi, ég dæmi engan hérna á þessari jarðarkringlu okkar, það er ekki mitt verk, en Jesús bað mig eitt og það var að boða hans orð og lögmál föður hans!!!

Það er ég að gera hér og NÚ!

Þess vegna Sá ykkar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum!


Tata,
L