Djöfull finnst mér fyndið þegar ég heyri fólk vera að segja að hnakkar séu eins.
Hér á huga sér maður allstaðar að einhverjir eru kallaðir hnakkar því þeir hlusta á rapp og klæða sig í litrík föt.

En þegar ég lít á skólann minn þá sé ég þessa “rokkara” og ég get ekki betur sagt en þeir séu nú bara nákvæmlega eins.
Ég er td. með 3 strákum í bekk sem ég man aldrei hvað heita því þeir eru allir með jafnsítt hár, í Metallica bol, spila allir á gítar og hata rapp.

Svo eru gaurarnir sem þeir kalla hnakka, hlustandi á allt frá Sigur Rós, Snoop Dogg, Mars Volta til Led Zeppelin og ýmis Metalbönd og gangandi í litríkum fötum, skyrtum, köflóttum buxum, flauelsbuxum, gallabuxum ofl með flottar hárgreiðslur, en “rokkararnir” í svörtum buxum í Metallicabol.

Hvernig væri að líta aðeins á sjálfann sig?