Oj hvað ég hata þessa spilara. Þetta æði er komið útí öfgar. Ekki spurja mig afhverju ég hata þessa spilara svo mikið, held það sé útaf því að fólk er bara að kaupa þetta útaf útlitinu. Æi nú var verið að kynna nýja “i-pod símann”

Vúbbí fokking dú. Ég keypti minn síma fyrir einhvverjum 3 mánuðum, 6230i minnir mig. Hann er með jafn stórt minni og þessi sími sem er að koma út núna.
Síðan keypti ég mér mp3 spilara rétt áður en ipod shuffle kom út. Sem er helmingi betri en shuffel, en samt nokkur þúsund krónum ódýrari.

Hata svona bull, peningaplokk!
Ég ætla ekki að byrja á fólki sem er að kaupa sér buxur fyrir 15.000+ vegna merkisins.

Plz, ekki segja mér að ég sé einn um þetta.

Hættið síðan að spamma huga með ykkar vandamálum með þessa hvítu ljótu spilara. Ykkar vandamál að þið veljið *tísku framyfir gæði.

*Ég ætla ekki að segja útlit, vegna þess að þeir eru ekki alveg ljótir… en samt ekki flottustu mp3 spilararnir á markaðnum.

Takk fyrir mig,
endilega hraunið yfir mig með skítköstum.

p.s. þegar ég segi endilega þá meina ég ekki