Áður en ég fer lengra þá ætla ég að spyrja ykkur öll hvaða þáttur fór mest í taugarnar í ykkur í sumar? Ég ætla ekki að nefna nafnið á þættinum en ég var að lesa það í einhverju blaði í dag að þessi íslenski þáttur sem sló óvænt í gegn kemur aftur um mánaðamótin.

Ég bara spyr er ekkert annað betra sjónvarpsefni sem Skjár einn getur haft í vetur?

En já ég ætla ekki að nefna þáttin á nafn hér enda veit ég að þið eruð búin að fatta hvað ég er að tala um.

Allavega veit ég að hér verður fjör aftur í korkunum enda búið að vera full rólegt hérna að maður er farinn að geispa hér ansi oft.

Verum því viðbúinn. Hún er að koma aftur…

Önnur þáttaröðin með SJÁUMST MEÐ SILVÍU NÓTT er á leiðinni í vetur.

AAAAAAAAAAAAAAAAAARRRRRRRRRRG! Takk fyrir mig.

(fvs fer nú inná klósett til að æla)