Ég er frekar óhress með Nachos-ið í Smárabíó.
Afhverju breyttu þeir þessu?
Nú eru bakkarnir 50% minni og Nachos-ið, ef ég á að kalla það Nachos, er orðið að einhverjum flögum! Nachos á að vera þríhyrnt! Það er miklu betra.

Síðan er það afreiðslan þarna. Hún er fyrir neðan allar hellur. Þegar það er hlé eru 3 stúlkur eða svo að afgreiða allan mannfjöldann, það er ömurlegt! Þær taka frekar sjaldan eftir hver er fyrstur, þegar ég hafði beðið í 5 mín. afgreiddi ein þeirra gaur sem var að koma í röðina.


Hvað finnst ykkur?