Þar sem fólkið hérna á huga.is er svo vanþakklátt með því að ágerast hvorki grúppíur mínar eða þá tilbeðjendur þá ætla ég hér með að hætta algerlega að eiga nokkurn þátt í því sem er að gerast hérna á huga.

Eina ástæðan fyrir því að ég sendi greinar og álit var til þess að færa ljósglætu inn í líf ykkar og gefa ykkur eitthvað til þess að lifa fyrir, en því miður þá eru það of margir hérna á huga.is sem eru svo algerlega húmorslausir og innantómir og mannfyrirlitningarsamir og gelgjur og frík og nörd og hommar og dulspekiáhugasamir og fleira scum of the earth sem eru algerlega ekki þess virði eiga samskipti við.

Þess vegna ætla ég bara að halda áfram að lifa mínu lífi IN THE REAL LIFE, sem er mitt aðalsvið, enda langflottastur og bestur og aðalhustlerinn, svo að ég held áfram að njóta lífsins í gleði og sjálfsánægju meðan þið SUMIR hérna á huga.is haldið áfram að rotna í sjálfsvorkunnsemi, sýndarmennsku, fyrirlitningu og mörgu öðru misjöfnu.

En hvað varðar ykkur sem hafið fílað mig hérna á huga.is og verið ekki fyrri til að koma með skítköst, ég óska ykkur bara alls góðs og vona innilega að þið fetið í sömu spor og ég með því að hætta hérna og flippa út í lífinu, en ekki þessum gerviheimi sem er aðeins skugginn af því sem hið real life hefur upp á að bjóða.

Far vel og Patrick Bateman varðveiti ykkur….