Djöfull finnst mér böggandi að þeir skuli ekki geta haft svona 400kr forsýningu fyrir okkur sem búa á Akureyri, og reyna svo að kalla þetta “lottasta bíóklúbb landsins”.

Sambíóklúbburinn, sem byrjaði með þetta tilboð fyrir þá sem eru skráðir á heimasíðuna þeirra, hafa fyrir því að hafa forsýningu á sama tíma og á sama tilboði og fyrir sunnan á meðan “hitt bíóið” sem er partur af bíó.is fær myndirnar seint, oft ekki fyrr en hætt er að sýna þær fyrir sunnan og án þess að bjóða uppá nein tilboð.