Þessi minnihlutahópur hefur orðið fyrir stöðugum árásum í gegnum aldirnar og aldrei lærir mannkynið neitt.
Ég vill bara byrja á því að segja að ég er mjög lélegur að rökræða hluti. En það fýkur alltaf í mig þegar svona bókstafstrúafólk ætlast til að allt mannkynið eigi að lifa eftir einhverri uppskrift, því þeirra frelsari sagði svo.
Ef fólk fæðist samkynhneigt þá má það bara vera samkynhneigt í friði. Ekki vera með þessar fáránlegu predikanir um af-hommun.
Árið 2005 er gengið í garð for crying out loud…! Hvernig væri nú bara að læra að lifa með fólki ekki vinna á móti því. Eða segja fólki að vera eitthvað sem það ekki er. Bara útaf því að þinn/ykkar guð sagði að þetta væri synd.
Það eru til fleirri þúsund trúabrögð afhverju erum VIÐ að trúa á það rétta.
Þessi trúabrögð voru bara til þess í gamla daga til að fylla uppí þau göt sem mannkynið gat ekki svarað… einsog “Hvernig var jörðin til?”
Samkynhneigð þekkist á mörgum stöðum í náttúrunni, afhverju ekki að afhomma mörgæsirnar… þetta er nú einu sinni synd ;) …
Ef allir ættu nú bara að lifa eftir einhverri uppskrift, hver væri þá tilgangurinn að lifa.
Já, samkynhneigð er nú “bæklun” og þið frábæru töframenn sem getið afhommað* fólk ættuð bara að afhomma alla hommana. Að vera örfhentur er líka bæklun, ætti ekki að kenna þeim að vera rétthentir bara útaf því að meirihlutinn af mannfólkinu er rétthent?
Guð skapaði fólk samkynhneigt, leyfið því bara að vera samkynhneigt í friði.

Lecter, forðaðu fólki frá þinni eigin heimsku og farðu og gerðu eitthvað gagnlegt.

*Heilaþvottu