A.T.H Olgeir skrifar

Á ég að segja ykkur af hverju ég er með svona mörg stig?

Best að ég geri það.

Það var fyrir rúmu einu ári sem vinur minn prófaði að skrifa http://www.hugi.is/admin í adress bar-ið. Þegar hann sló á enter takkann birtist admin síðan á huga. Hann þurfti ekki að slá inn lykilorð eða neitt. Hann skoðaði þetta en gerði ekki neitt (að ég held).

Í tölvutíma daginn eftir sýndi hann mér þennann galla. Við skoðuðum síðuna og við sáum að við gátum bannað alla sem við vildum, við gátum breytt stigum hjá öllum sem okkur sýndist og við gátum eytt því efni sem okkur sýndist.

Það sem við gerðum var einfaldlega að við bættum slatta við stigin okkar. Ekkert annað. Svo sögðum við stjórnendum huga frá þessu.

Nú er búið að banna mig. Væntanlega útaf þessu. Ég sendi e-mail fyrir mörgum dögum til JReykdal en ég hef ekki fengið svar.

Ég var bara að viðurkenna þetta opinberlega og ég væri til í að heyra ykkar skoðanir á þessu máli!