Jæja, þar sem ég var að leika mér í moldvörpuleik í tölvunni minni að grafa upp gamlar skrár fann ég eldgamla mynd af mér. Mynd síðan um miðjan febrúar, en þessi gamla var frá byrjun apríl.

Þar sem gamla myndin mín hefur ávallt verið frekar umdeild ákvað ég barasta að skipta og hleypa þessari að. Þó hún sé eldri og ég líti í raun allt öðruvísi út í dag, þá er hún samt af mér.

Ég vona að hugarar virði þessa mynd betur, nái jafnvel að flissa eilítið yfir henni.

Að lokum vil ég afsaka tilgangsleysið í þessu. Ef þú ert að lesa þessar lokalínur mínar ætti þér reyndar að vera nokk sama um það, því að varað var við því í titli korksins. Ef þú ert samt að lesa þetta og ert að pirra þig á tilgangsleysinu, þú um það. Ég varaði þig við.

Hér með endar þessi korkur.