Ég vill meina að ástæðan fyrir því að stjórnendur eru ekki að standa sig í stykkinu er að það er nákvæmlega EKKERT upp úr því að hafa að vera stjórnandi á áhugamáli.
Yfirstjórn Huga veitir engan stuðning. Ef manni langar að koma inn einhverju efni sem t.d. inniheldur myndir þá annaðhvort þarftu að hýsa það sjálfur eða væla og væla og væla í JR.
Stjórnunarkerfið á Huga er því miður bara ekki nógu gott. Það vantar edit möguleika, myndasöfn, korkastjórn og margt margt fleira sem stjórnendur ættu að geta gert.
Ég áfellist ekki þá stjórnendur sem gefast upp á þessu á endanum. Það virðist vera að yfirstjórnendur huga séu annaðhvort uppteknir að því að gera eitthvað bakvið tjöldin (sem ég vona) eða bara búnir að gefast upp.
Ég ákvað minnstakosti að hætta að sóa mínum tíma sem stjórnandi á Huga og lét afskrá mig.