Jæja, kæru hugarar. Ég hef tekið eftir miklum hatri og óánægju hér á forsíðukorkunum. Þetta leist mér ekkert alltof vel á svo ég ákvað að gera þennan hérna kork.
Tilgangur korksins er að segja eitthvað fallegt um aðra hugara, eða bara alla hugara yfirhöfuð. Ég vil þá bara byrja á því að segja að mér finnst þið öll vera fín á ykkar eigin hátt, ég ætla ekkert að neita því að sum fá mig til að hlæja meira en aðrir en kærleikurinn nær yfir ykkur öll.
Byrjið nú, komum kærleiknum á korkanna!