Til að byrja með vil ég biðjast afsökunar á því að hafa sent inn 2 korka með svo stuttu millibili. Ég tók bara ekki eftir þessu fyrr en ég fékk svar við hinum korkinum.

Þannig er mál með vexti að þegar ég sá að ég átti 2 ný skilaboð, vegna póstsins um SS auglýsinguna, sá ég að þetta voru einu skilaboðin í skilaboðaskjóðunni. Mitt yndislega safn af skilaboðum um að mér hafi verið svarað og morðhótunum virðist hreinlega vera horfið.

Er einhver annar sem lenti í þessu? Eru einhver svör sem hægt er að gefa mér?