Ég skora á alla til að gefa þúsund kall (í það minnsta) með því að hringja í söfnunarsíma rauða krossins. Síminn er 9072020 og þá verður tekinn þúsund kall af símreikningnum.

Fyrir þá sem vilja nota heimabanka [af rki.is] -
“Einnig er hægt er að styðja hjálparstarfið með því að leggja inn á reikning 1151-26-12 kennitala 530269-2649 og með greiðslu af kreditkorti með því að smella hér.”

Gefið pening. Til samanburðar er einn þúsundkall minna en bíóferð með poppi og kók, ekki einu sinni helmingurinn af geisladisknum perlur með birgittu haukdal, ca tveir bjórar á skemmtistað í reykjavík, eða ein kippa af faxe í dós.

Á hamfarasvæðunum gæti þúsundkallinn þinn bjargað mannslífi, jafnvel mannslífum.