Góðann daginn.

Nú rétt í þessu var ég að segja upp ótengdri tengingunni minni hjá Hive. Mikið rifrildi var á milli okkar bræðranna sem nota þessa tengingu og ákvöddum við að hætta við.

Ég hringdi, og svaraði þar karlmaður.

Ég bar upp erindi mitt, og hann fletti upp nafninu á rétthafa tengingarinnar og sagði að hún væri í vinnslu. Ég spurði hvað það þýddi og hann svaraði mér því með því að LJÚGA upp í opið geðið á mér.

Hann sagði að upplýsingarnar væru komnar til OgVodafone, og sagði að það yrði lokað á tenginguna sennilega, og ég þyrfti að opna hana aftur með því að BORGA startgjaldið.

Ég greindi honum frá því að ég væri ekki búinn að borga eyri og það væri aðeins 1 dagur síðan ég skráði mig upp fyrir tengingunni og þetta væri það asnalegasta sem ég hafði heyrt, að þeir gætu ekki fyrirséð það að fólk þarf kannski að hætta við á síðustu stundu!¨

Svo endaði þetta með því að bað hann um að hætta við þetta allt saman, og hann gerði það jú.

Eftir þetta þá hringdi ég út í Ogvodafone, og greindi manni þar frá því að ég hætti við að segja upp tengingunni minni hjá þeim, og spurði hann hvort ég þyrfti að borga aftur til þess að láta opna fyrir tenginguna en hann neitaði því og var hinn kampakátasti.

Pæla í þessu… “HÆ ÉG HEITI JÓN OG VINN HJÁ HIVE OG LÝG AÐ FÓLKI TIL ÞESS AÐ FÁ MEIRI VIÐSKIPTI”
(\_/)