Ég hata margt og mikið! Svo að þetta gæti orðið langt! :)

1. Íslenskt popp, Birgittu Haukdal, Jónsa og allt sem þeim fylgir.

2. RÚV! Ég myndi kála mér ef að ég væri ekki með S1. Stöð2 er ekki nauðsynleg eftir að enski boltinn fór yfir á S1 en allavega ég hata RÚV! :@

3. Trega símann minn >NOKIA 2100< Sem að frýs á 3 sekúndna fresti og gerir líf mitt óbærilegt með því að hringja í miðjum tíma ÞÓ hann sé á SILENT :@:@ og já bwt takk amma fyrir að hringja í mig..! :@

4. Gelgjur og þeir sem spila Counter Strike og tala svoleiðis í alvöru! Nokkurnveginn sama fólkið! LOL RoFL! HaXZ0r, OmG!!!!11111 GmGG!!!!! Ojjbara deyjiði öllsömul!

5. Diet Kók og fólk sem drekkur það! Vá cmon maður fitnar ekki af því að drekka venjulegt, vel smakkandi kók! Maður fitnar af því að maður situr inni allan helvítis daginn og telur hitaeiningar og borðar snakk á meðan!

6. Grenjuskjóður! A.k.a píkur!! Hey.. stelpur mega væla mín vegna! En þegar að það eru svona strákar sem væla yfir öllu og geta svo ekki haldið kjafti þegar þeir eru ekki að væla pirra mig mikið og þessvegna er að nöldra yfir þeim!

7. Talsettar myndir, auglýsingar, táknmálsfréttir whatever! Guð minn góður það er pirrandi þegar að kjaftur og tal halda ekki takti!! :@

8. Fólk sem gengur í tildæmis bol með segjum bara Sex Pistols sem að ég fíla mikið tildæmis. Svo veit það ekki rassgat um þessa hljómsveit! Andskotinn hafi það ég hata svoleiðis!

9. Hljóðið í fjandans vekjaraklukkunni!! :@ Ekkert smá pirrandi að vakna við þetta!

10. Svona þessa típísku folk.is gelgjusíðu með 900 linkum sem allir verða að skoða og skrifa í gestabókina og sleikja á þér tærnar og svoleiðis! Þoli það ekki

11. 50CENT! hahahahahaha hvað ég hló þegar ég sá hann grýttan af sviði um daginn! Hahahaha hann er svo mikill sori!

Ég held að ég nenni þessu ekki! Takk fyrir að hlusta, ég hef létt af mér! :D