Ókey kannski ekki allir en vel flestir.
Ég er svo óheppinn að vera að vinna á Bensínstöð nálægt Hellu og þvílíkt og annað eins.
Er bannað að skafa hrossamykjuna af stígvélunum þegar maður fer útí sjoppu að graðga í sig pulsur og ís… og ég vill sérstaklega þakka þeim sem sá sér fært að skilja eftir heilu heyrúllurnar af grasi út um allt.

Svo vil ég benda hrossafólki á að þótt það sé hrossamót þá er alveg hægt að fara í sund til að þvo sér alla vega einusinni meðan mótið er. Hrossafýlan er ekki svo slæm en þegar svita og táfýlunni eftir 2 daga er bætt við og heil fjölskylda kemur inn í litla sjoppu… þá er ilmurinn nóg til að myrða 18 tonna fíl.<br><br>————–
It's a small world, but I wouldn't want to paint it…
————–