AUKATÓNLEIKAR MEÐ DEEP PURPLE Í LAUGARDALSHÖLL 23. JÚNÍ 2004
16. apríl 2004
Miðasala hefst 23. apríl kl 11:30 á Hard Rock Café og síma 511 2255

Þá er loksins kominn staðfesting á aukatónleikum með Deep Purple. En eins og þekkt er orðið þá seldust miðar á síðustu tónleika upp á innan við klukkutíma. Þetta voru viðbrögð sem komu jafnvel hörðustu Deep Purple aðdáendum í opna skjöldu. Þá þurftu reyndar þúsundir frá að hverfa miðalausir en nú eiga aðdáendur sveitarinnar von um að tryggja sér miða á aukatónleika.



Sveitin er að koma úr mikilli reisu frá Asíu og er nú kominn til Bandaríkjanna þar sem hún heldur áfram að trylla lýðinn. “Það hefur verið erfitt að fá staðfestingu á aukatónleikunum þar sem erfitt hefur verið að ná í sveitina enda mikill tímamismunur og annað sem hfaa þarf æi huga þegar menn eru staddir hinum megin á hnettinum. Bandið er í banastuði. Þeir sem hafa áhuga geta lesið dóma um frammistöðu sveitarinnar á www.thehighwaystar.com

Aukatónleikarnir verða haldnir kvöldið áður eða þann 23. júní 2003 og hefst miðasala föstudaginn 23. apríl næstkomandi klukkan 11.30 á Hard Rock Cafe og í síma 511 2255 hjá Concert.

”Þetta er alveg frábært! Símarnir hér hafa ekki stoppað síðan við seldum upp á síðustu tónleika. Manni var reyndar farið að líða hálf illa að geta ekki boðið strax uppá aukatónleika en nú er þetta staðfest og við eru agalega hamingjusöm. Ég á jafnvel von á því að fólk fari á báða tónleikanna enda er þetta svo sem ekki mikið dýrara en að fara á ball,“ segir Einar Bárðarson hjá Concert ehf.

Nú verða miðar boðnir á fleiri stöðum um landið en síðast. Miðaverð er ennþá jafn ódýrt.
Miði í stæði kostar 3.800 kr. og í stúku 4.800 kr.<br><br><font color=”#0000FF“>Noel áritaði gítar Gary Neville svona : ”Dear Gary, How many caps have you got for England? How many do you deserve? I'll tell you - none. Lots of love, Noel Gallagher. MCFC."</font