Djöfull eru böggandi þessar helvítis skammstafanir sem allir virðast nota á netinu. Þetta er ekki bara angrandi fyrir venjulegt fólk heldur lætur þetta þá einstaklinga sem kjósa þennan lágkúrulega tjáningarmáta líta illa út. Nú er um að gera fyrir þennan menningarheim að láta ljós sitt skína og hætta þessu rugli og temja sér gott, fallegt og vandað mál. Þá á ég að sjálfsögðu við íslenskuna.