Áðan var ég að chilla heima í tölvunni og allt í einu langaði mig alveg rosalega í Oreo kex sem er besta kex í heiminum og geiminum(mér finnst það allavegana). Jæja eg lagði þá af stað útí 10-11 ég geng inn og er strax farinn að hlakka til að kjamsa á kexinu góða.. Enn mér til mikillar vonbrigða sé ég að það finnst ekki oreo pakki í kexdeildinni. Mig langaði til að gráta og gekk rakleiðis að afgreiðsludömunni og spurði hvernig fjandanum stæði á því að oreo væri ekki til. Hún svaraði þau eru líklegast bara búin með einhverju sudda glotti og þá sagði ég “that´s it” ég teygði mig í næstu glerflösku þrykkti af öllu afli afgreiðslukonuna og hún féll samstundis.. Nei það gerðist ekki enn þetta var það fyrsta sem ég kom í huga minn þegar hún sleppti setningunni(þó að ég vissi að hún réði voða littlu um hvort oreo væri til eður ei). Ég strunsaðist heim með sárt ennið og lét mér duga hafragraut og slátur sem hafði verið í matin kvöldið áðu