Framhald af nöldurlista 1.
Ég hata…
-Pamelu Anderson, hún er ekkert falleg, bara gömul kona með stór brjóst og mikinn farða.
-Sigga Hall, Gísla Martein, Pál Óskar og Hitler.
-Strengi.
-Star Trek, Innlit/útlit, Tónlistarmyndbönd á skjár 1, Bachelor/Bachelorette og Survivor.
-Nörd sem gera í því að vera nörd, td. loka alla í burtu og spila tölvuleiki og mæta aldrei á samkomur nema þá helst á lön.
-Fólk sem er ekki að vanda sig að skrifa rétt og skrifar “máfá bílin lánaðann?!?!??!?! knske fer jég í bæjinn.”
-Fólk sem skrifar eins og það talar.
-Fólk sem skrifar Z í staðinn fyrir S útaf það er töff, (er ekki að tala um eins og í gamla daga) td. ”Vá zjáðu, ég er kúl ég zkrifa Z í ztaðinn fyrir S.
-Fólk sem treðst í biðröðum, og er ekkert endilega að komast áfram heldur bara til að riðlast á manni.
-Þegar fólk gerir grín að Norðlensku og hvað það er harðmælt en talar sjálft eins og þeir eru ekki með vöðva í munninum.
-Kasmír síður sem eru með miklum litum og orðin Friends og Harry Potter koma fram.
-Harry Potter.
-Ekki Friends.
-Rammstein.
-Fólk sem reynir að vera heimskt til að vera “töff” eða fyndið eins og Joe í friends.
-Lata þjóna.
-Kennara sem tala í símann sinn í vinnutíma.
-Þegar fólk reynir að plata mann inn á Kings of chaos eða svona linka: http://piv.pivpiv.dk.
-Fólk sem víkur ekki í burtu þegar maður labbar beint áfram og maður er kannski sjálfur upp við vegg og getur ekki farið í burtu og svo endar þetta með slagsmálum.
-Dyraöt, sérstaklega þegar maður nennir ekki að elta krakkana og fara með þá til foreldrana og segja þeim að krakkarnir þeirra séu alltaf að brjóta rúður, kasta steinum og pissa á hurðina hjá manni.
-Fullt fólk, sérstaklega ef það er að tala við mann, annars er mér sama þótt það sé allveg að drepast á meðan það er ekkert að böggast í manni.
-Reykingarlykt á morgnana og seint á kvöldin (þegar maður er að fara að sofa) en ekki um miðjann dag.
-Barnaefni sem reynir að heilaþvo litla krakka sem vita ekkert í sinn haus. Maður á að láta þá horfa á vel valdnar spennumyndir.
-Fótbolta og handbolta.
-Fótboltabullur sem tala ekki um neitt annað en fótbolta og fara í fýlu í viku ef að liðið þeirra tapar.
-Formúlu 1 og golf.
-Frjálsar íþróttir.
-Fólk sem heldur að það séu ekki til fleiri íþróttir en fótbolti, handbolti, golf og Formúla 1.
-Þegar einhverjir rífa kjaft og ráðast á mann og maður ber þá í klessu en endar með því að vinir hanns ráðast á mann. (getur verið mjög pirrandi þar sem það er fullt af vitnum sem sér að maður sé að beita ofbeldi og maður er kærður)
-Fólk sem talar í bíó.
-Fólk sem hlær í bíó.
-Rispaða DVD diska.
-Slagsmál (þótt að ég sé að æfa bardagaíþróttir)
-Þegar fólk reiðist þegar það sér Rússnenska fánann.
-Þegar Ísland er að herma eftir öðrum löndum, td. að byrja með Idol og Hver vill vinna milljón.
-Fólk sem svarar spurningum á huga með svörunum “Ég veit ekki” “Hef ekki hugmynd” ofl.
-Sápuóperur.
-Óperur.
-Margt og mikið fleira.
Þið getið fundið Nöldurlista nr. 1 hér: http://www.hugi.is/forsida/korkar.php?sMonitor=viewpost&iPostID=1355143&iBoardID=118&iStart=10
höfundur skrifaði:
texti
<h