Nú er tekin til sýninga önnur myndin af “The Matrix” víða um land. Í myndinni gengur fólk um og heldur að það sé “frjálst”, veit ekki að ill vélmenni stjórna heiminum, vélmenni sem hata það, að “frelsi” þeirra er aðeins blekking.

Spurt er í fyrri myndinni “What is the Matrix?” Ég skal segja ykkur öllum hvað það er. The Matrix er það hugarástand að halda að maður sé frjáls þegar svo er ekki. Að halda að maður sé eigin herra þegar maður er annara þræll.

Forfeður okkar komu frá Noregi og Írlandi. Í Noregi höfðu þeir flúð “Matrix” konunginn þar, sem lét alla borga sér skatt fyrir “þeirra eigin” lóðir. Vegna þess að þeir vildu fá að verða frjálsir menn, eigin herrar, menn sem gætu eignast eitthvað, lifað sínu eigin lífi á eigin forsendum!

Í Írlandi urðu menn fljótt fyrir harðræði Breta. Öldum saman hafði hver írsk fjölskylda átt sitt eigið land. Það voru lög í Írlandi um að hver fjölskylda ætti rétt á eigin landi. Eigin húsi! Það var hin írska sál! Frjáls sál!

Svo réðust Bretar inn í Norður Írland og með klókindum hrifsuðu þeir land fólksins og létu Íra nú BORGA SÉR, fyrir að búa á sínu “eigin landi”. Mikil hungursneyð varð úr þessu, og milljónir Íra dóu.

Í Noregi var Haraldur hárfagri “The Matrix”
Á Írlandi voru Bretar “The Matrix”

The Matrix er þessi rödd sem hvíslar að þér “þú ert frjáls, þú ert þinn eigin herra” þegar í raun er það hún sem stjórnar þér, hún sem á þetta allt, sem sannast best á því að þú þarft að BORGA HENNI fyrir að búa á “þínu landi”.

Þetta er rödd blekkingarinnar sem heyrist hátt í fjölmiðlum og hljómar hæst á alþingi úr munni fucking öfga-kratanna þar sem virða ekki eignarrétt Íslendinga frekar en Haraldur hárfagri eða Bretar!

ÞEIR HAFA SVIKIÐ FORFEÐUR VORA!

Ég þekki gömul hjón í Reykjavík sem höfðu alla æfi verið að borga af húsinu sínu og áttu það loksins skuldlaust. Það var mikil gleði og þeim hlakkaði til að eyða síðustu æfidögunum í þessu fallega húsi og bjóða barnabörnunum í heimsókn og arfleiða svo börnin sín því þegar þau færu.

R-listinn sparkaði þeim út á götu afþví þau gátu ekki borgað “eignarskattinn” lengur af “sínu húsi” sem þau áttu nú skuldlaust.

Þetta er THE MATRIX! OG ÞAÐ ER LJÓTT! (finnur einhver skítalykt?)

En þessi orð hér bera okkur angan frelsisins, ferska og sumarlega:

„Fái Sjálfstæðisflokkurinn stuðning í kosningunum í vor til áframhaldandi stjórnarsetu mun eignaskatturinn verða endanlega aflagður og er það vonum seinna. Lækkun og síðan afnám eignaskatts á íbúðarhúsnæði kemur eldri borgunum sérstaklega til góða.“ - Ásta Möller alþingismaður.

Ég vitna í hana Ástu afþví hún er einn af mínum uppáhaldsstjórnmálamönnum. Hún virðir forfeður sína Norðmenn og Íra. Hún er enginn Haraldur eða Englendingur til forna! Hún er í flokki Trinity ,Neo og Morpheusar okkar Íslendinga: Sjálfstæðisflokknum! Hún er ekki gráðugt skrýmsli sem sparkar gömlu fólki út á götu fyrir að geta ekki borgað “eignaskattinn” (af eigum sem það var búið að borga upp í topp!) eins og R-listinn gerði á tímum Ingibjargar Sólrúnar.

Gömlu hjónin sem dreymdi um fögur efri ár í fögru húsi sem þau gætu notið þess að vera með barnabörnunum í og arfleitt svo börnin sín af hýrast nú í kjallarholu í einu úthverfa Reykjavíkur. Þau eru komin aftur á upphafsreit, í samskonar húsnæði og þeirra fyrsta íbúð. Rétt eins og þau hefðu aldrei átt neitt, þökk sé “eignarskattinum” sem fólk borgar með fyrir EIGIN eigur!

Rétt eins og Norðmenn þurftu að borga Haraldi og Írar Englendingunum sem hirtu hús þeirra og létu þá svo borga sér fyrir að búa í þeim!

Þetta er raunasaga ótal eldri borgara og sums ungs fólks sem lent í fjárhags erfiðleikum líka. Þetta er fólk af lág- og millistétt, milljóner hefur aldrei lent á götunni vegna eignaskatts.

Nú berjast vinstri menn inn á þingi fyrir því að tillögur Sjálfstæðisflokks um að afnema eignarskatt nái ekki fram að ganga!
Tillögurnar um að við verðum loksins frjáls eins og víkingarnir fyrstu hér þráðu og voru, þar til þrældómurinn kom á ný!


Ég skora á þig að rísa upp og senda bréf til alþingis um að þú styðjir þá og hlusta ekki á illu vélmennin, Matrix kommana sem vilja halda okkur þrælum!

Ég vona að þú hafir erft hugrekki en eigi þrælslund frá forfeðrum þínum og standir upp og verjir gamla fólkið og þína eigin framtíð!

Niður með eignarskatt! Látum engan skipa okkur að borga fyrir “okkar eigur”. Niður með hræsni, slægt og tvöfeldni og lygar!

X-Morpheus , X-D


xDkynslóðin

fyrrverandi vinstrimaður.