Sá einhver Jay Leno í gær? Þvílíkt fífl sem þessi Dennis Miller er, greddan og þjóðrembingurinn skyggðu hvort á annað til skiptis og ekki var Leno skárri, hló eins og vitleysingur af öllu saman og salurinn réð varla við sig fyrir kæti, stappaði, klappaði, blístraði og hló. Dennis hafði aldrei verið eins stoltur og þegar hann fygdist með sprengjuárásunum í Írak og stóð í miklum persónuárásum á alla þá sem ekki eru sammála Bush, gaurinn er hreinlega ástæðan í hnotskurn fyrir hatri flestra á Bandaríkjunum.
Þegar ég horfði á þennan erkihálfvita hálfóskaði ég eftir annarri hryðjuverkaárás, bara svona til að lækka í honum rostan.
En svo tók skynsemin við á ný og sá ég að saklaust fólk á ekki skilið að láta lífið fyrir slíkan hálfvita.