Hugari ársins: Hvurslags fyrir að vera til.

Kaldhæðni ársins: SBS fyrir að troða ofan í þursa sem kunna ekki á lífið með ógleymanlegri kaldhæðni.

Egóisti ársins: Snjall. Bannið við html var bara gott á hann.

Stafsetning ársins: Porkur. Ekki spurning. Ekki spyrja.

Ofvirkni ársins: Amon fyrir óteljandi stigahórugreinar á Tolkien áhugamálið.

Notendanafn ársins: Rassmadkur. Getið þið fundið huggulegra orð?

Áhugamál ársins: Skák. Fyrst ég fékk ekki grænlensku lúðrasveitirnar inn ákváðu stjórnendurnir að stríða mér aðeins og sjá hvernig ég myndi bregðast við skákáhugamáli.

Það má sjálfsagt tína fleira til, en nennið mitt leyfir það ekki.

Hvurslags<br><br><a href="http://www.hvurslags.blogspot.com">Vits er þörf
þeim er víða ratar;
dælt er heima hvað.
Að augabragði verður
sá er ekki kann
og með snotrum situr.

<i>Hávamál</i></a