Ég er geðveikt hrifin af einum strák sem er jafn gamall mér og hef verið það í þrjú ár. Mér finnst hann geðveikt sætur, flott augu, skemmtilegur og það er meira að segja hárið á honum sem ég er hrifin af. Ég spurðu svo vin minn sem er vinur hans hverri hann væri hrifinn af og hann sagði að hann væri skotinn í einhverri stelpu sem hann þekkti ekki. Ég var geðveikt fúl og veit ekki, ég er búin að vera ótrúlega lengi hrifin af honum og ég get ekki hætt að vera hrifin af honum. Hvað get ég gert. Ég er hrifin af honum yfir haus en honum finnst ég örugglega bara venjuleg.
Stundum finnst mér líka eins og honum finnist ég vera pirrandi eða eitthvað en kannski er hann hrifin af mér.
Vilja flestir svara hvað ég ætti að gera og hvað strákar vilja helst í útliti stelpna.