Pirrandi fólk í bíósal Ókey þetta verður laaaaaaaaaangt nöldur hjá mér og mig langaði að gera grein um þetta vegna þess að ég er ekki sú eina sem finnst sumt fólk í bíósal vera alveg óþarflega pirrandi.

Ókey til dæmis þegar ég var 11 ára gömul dróg eldri bróðir minn með sér í bíó á fyrstu Harry Potter myndina, og við lenntum hliðin á þessum ótrúlega pirrandi litlum smápíkum! Í hvert skiptið sem einhver galdur var framinn í myndinni, þá endurtóku þær ALLT, og þá meina ég ALLT það sem gerðist, gerðu sömu handahreyfingarnar og þau í myndinni og sögðu þuluna með þeim, ég ætlaði að verða gjörsamlega gráhærð á þessum stelpum, ein þeirra meira að segja sló poppið úr höndunum á mér með einhverri gjörsamlegri fáránlegri handasveiflu!! mig langaði að öskra á hana, en tek það fram að ég var 11 ára og þessar stelpur virtust á svipuðum aldri þannig að þetta lítur ekkert út fyrir að þetta væri einhverskonar ofbeldi á litlum krökkum.

Og líka það sem ég hata þegar ég lendi fyrir framan einhverja fáránlega háværa litla púka með of gerfilegan hlátur, t.d. öskruðu þeir og spörkuðu í sætin hjá manni þegar alveg ófyndnustu atriðin voru í myndinni, það gjörsamlega þoli ég ekki á meðan ég er að reyna að hafa gaman að myndinni, þá eru einhverjir 5 litlir smá strákar organdi og sparkandi í sætin hjá manni, ég veit að það er ljótt að segja þetta en mér alveg dauðlangar að slá svona fólk utanundir!

Einnig þoli ég ekki þegar ég lendi fyrir framan gaur sem er 1,90 cm á hæð og pæla ekkert í því hvort maður er smávaxinn eða ekki, setjast bara fyrir þannig að maður sér ekki neitt á tjaldið. Svo líka er óþarflega pirrandi fólk þegar það er með fæturnar upp á stólunum fyrir framan!! Sko þá er ég að meina þegar einhver situr þar á meðan, það er allt í lagi að vera með fæturnar uppi á meðan enginn er fyrir framan mann, annars er það ekkert nema dónalegt…

Ég lennti t.d. í einum svona í kvöld, 9. september 2006, var í bíó á Step Up og lennti fyrir framan einhvern fávita sem var bara með fótinn og drullu skítuga skó í hausnum á mér, ég ætlaði að verða gráhærð eftir þennan gaur!

Og svo sem er líka einnig pirrandi og það er þegar fólk er að henda poppi út um allt, vá hvað það er alveg óþarflega böggandi!! Og svo líka eitt sem ég ÞOOOOOOOOLI ekki, það eru 12 ára krakkar sem eru með stanslausan hávaða á meðan myndinni stendur, talandi og talandi á meðan myndin er, halló borga krakkar 800 kr. bara til þess að pirra fólk?! Það er gjörsamlega fáránlegt!

Og já ekki má gleyma… Farsímar… senditæki djöfulsins! ég gjörsamlega þoli ekki þegar fólk setur ekki gemsan sinn á silent á meðan í bíóinu, eitt dæmi, 14 ára stelpa á hæðsta stigi gelgjunnar situr í bíó og gemsinn hennar hringir, ótrúlega leiðinleg hringing, Toxic með Britney Spears or sum… og hún svarar með gelgjulegri rödd: ,,HÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆ!! já ég er í bíó, já ó mæ gosh skiluru! ó mæ gad ert ekki að djóka?? ó mæ gad!!!!!!!! hahahahahahaha! já hann er svo sææææætur!!!!" þannig þoli ég ekki, hef lennt í því að vera í bíói þar sem er þannig ein manneskja!!

Mér finnst þetta alveg vera nóg í bili af pirrandi bíó gestum…

takk fyrir
Zimpo