Ég var í bíó áðan með vinkonu minni á kill bill, og við sátum fyrir aftan par sem virtist alveg eðlilegt..Hannah vinkona mín var með fæturnar upp á stólbakinu en færði þær um leið og fólkið settist….þarna sátum við rétt eftir hléið og hannah sat með krosslagðar fætur og maðurinn byrjar að halla sér aftur svo mikið að það er varla pláss fyrir lappirnar á henni og hún ýtir aðeins í stólinn..hann snýr sér við og kallar okkur helvítis píkur og segir að við séum óþroskaðar..ég segji náttla strax að hann sé þrítugur og er að kalla okkur píkur og hver er þá óþroskaður….við rífumst smástund þangað til hann snýr sér við og slær hana utan undir……ég meina hvað á maður að gera…við förum fram tölum við stelpu sem vinnur þarna og segjum henni hvað gerðist….hún hringir strax á öryggisvörð..öryggisvörðurinn kemur og biður okkur um að sýna sér manninn…við gerum það og maðurinn kemur fram..hann segist ekki hafa gert neitt og það höfum verið við sem höfðum verið ókurteisar og hrokafullar…þessu er semsagt öllu snúið á okkur og við beðnar um að biðjast afsökunar og setjast aftur inn…við gerum það auðvitað ekki.og strunsum út úr bíó….hvernig er heimurinn orðinn þegar 14 ára stelpur eru lamdar í bíó og það er ekki gert rassgat í því af því maðurinn sem gerði það er fullorðinn og er með konu og lítur alveg eðlilega út…það greinilega þýðir að fullorðið fólk má gera hvað sem er því það er auðveldara að trúa því sem þau segja…..ég gat ekki gert neitt í þessu nema bara fara út og hringja í pabba minn sem getur sennilega heldur ekki gert neitt…ég meina afhverju í helvítinu ættum við að ljúga þessu..það er kannski auðveldast fyrir örryggisvörðinn að gera ekki neitt….mér finnst að unglingar séu líka fólk og það á að taka þá eins alvarlega og fullorðna…þessi maður er örruglega stórhættulegur fyrst hann er að slá stelpur út af einhverju eins litlu og að vera með fæturnar fyrir sér……ég bara skil þetta alls ekki ég veit ekki hvað ég get gert annað en að segja fólki frá þessu
sunna..thebugkiller!!!