Jæja, þessu hef ég verið að bíða eftir í herramans tíð…
hef ávalt pælt í því hvenar kemur “Disney” korkur hingað á huga, en nú sé ég að hann er kominn og ég hreynt vona að hann verður notaður mikið eins og ég hef dreymt um :D

Allavega, fyrst hann er kominn datt mér í hug að spyrja ykkur að sotlu…
Ég ættlaði á hérna “gauragangur í sveitinni” eða “home at the range” í bíó þegar hún kom hingað, var búinn að bíða og bíða eftir að þessi mynd mundi nú loksins koma í bíó… en viti menn, kom aðeins á íslensku.

Fer það ekkert í taugarnar á ykkur?

Ef ég fer á www.sambio.is (sem flytja myndirnar inn) þá stendur í fréttunum þar að þeir ættla að sýna hana bæði á íslensku og á ensku, en ég sé hana bara hvergi á ensku.
Hringdi og alles þangað, og samkvæmt starfsfólkinu sem svara í simana, þá ættla þeir ekkert að sýna hana á ensku!! :(

Er ekkert að lítast á sambíó-in núna :/

Endilega gefið ykkar álit á þessu ! :)