Ég hef mikið tekið eftir Skammstöfunum allstaðar á netinu, bæði í leikjum, á spjallrásum, heimasíðum og bókstaflega allstaðar. Ég er að tala um skammstafanir eins og OMG,OMFG,STFU,LOL. Þessar skammstafanir vekja ógleði í huga mínum og ég get ekki hugsað mér verri leið til tjáningar en skammstafanir á sjálfu kana málinu, ensku (bandarísku). Ég sárbið alla sem nota þessar skammstafanir að hugsa sinn gang, og sýna okkar ágæta móðurmáli örlitla virðingu! Ég hef alvarlegar áhyggjur af þessu, þar sem ég sé fleiri og fleiri detta ofan í þennan pytt, nánast daglega. Ég hef oft hugsað hvað lætur menn komast að þeirri niðurstöðu að nota skammstafanir eins og OMG (Oh my GOD!) hingaðtil hafa aðeins 11 - 13 ára gelgjur notað þetta, en nú er þetta altalað, í einhverjum skammstöfunum… þetta er synd og skömm, og mér finst að allir ættu að standa saman og útrýma þessu! ….. Ég hef lokið mínu mál.