Daginn allir :)

Málið er þannig að ég keypti mér ACER Aspire Blue 6920 með GeForce 8400 GS að mig minnir en hún eyðilagðist. Tryggingarnar borga það til baka og nú vantar mig nýja og öfluga vél á svipuðu verði (ekki hærra)

Þar sem að vefsíður fyrirtækja eins og Max og BT eru ekki uppi (wtf) þá bið ég ykkur um að leiðbeina mér aðeins hér ;)

Hvaða tölva er í boði sem er á þessu verði, getur spilað leiki og er hagstæðust í kaupum?

ACER Tölvan mín var ágæt í leikjum, gat spilað COD4 og allt það en hún var ekkert að brillera neitt og heillaði mig ekkert svakalega (sérstaklega ekki fyrir þennan pening)

Ég er ekki alveg viss hvar annarstaðar ég get spurt um þetta þannig að ég hendi þessu bara hér inn ;)
Bara.. tilbúinn.. ?