Ehh…. Ég verð væntanlega MYRTUR af öllum RA2 gaurunum sem venja komur sínar hingað innan fárra daga, en ég ætla samt að segja þetta :)

Ég fékk mér Red Alert þegar hann kom fyrst út, eftir að hafa farið alla mögulega hringi í C & C sem hægt var að fara, og ég varð fyrir vonbrigðum. Mér fannst hann bara alls ekki jafn svalur og fyrri leikurinn! Svo kom C & C: Tiberian Sun, og ég tók gleði mína á ný, af því hann var jafn ógeðslega svalur og fyrsti leikurinn!
Nú er ég búinn að vera að hlakka til að tékka á Red Alert 2, en er þetta ekki bara það sama? Tekur því fyrir mig að fá mér hann, á ég ekki bara að bíða eftir næsta C & C leik?

The Outlaw Torn