Rangt.
Veistu hvað ferming er?
Það er staðfesting þín á skírninni. Þú varst skírð(ur) þegar þú hafðir ekkert um það að segja. Þegar þú nærð 13 ára aldri (og ert þá fullorðinn í augum kirkjunnar) þarft þú að staðfesta skírn þína inn í kirkjuna sjálf(ur).
Flestir krakkar fermast fyrir gjafirnar (ég líka) en er nokkuð sama um hvað fermingin er.
Þar sem ég hef sagt mig úr þjóðkirkjunni, hef ég því tekið afstöðu sem er þvert ofan í þá afstöðu sem ég tók þegar ég fermdist. Ég hafna semsagt skírninni. Það, í eðli sínu, er því af-ferming.
Það er ekkert trúfrelsi eða trúar jafnrétti á Íslandi og verður ekki fyrr en ríki og kirkja skiljast að. Það felur vitaskuld í sér að leggja niður Kirkjumálaráðuneytið.
Ég er trúlaus. Samkvæmt skilgreiningu íslenskra laga, nýt ég ekki sama réttar og trúaður einstaklingur. Ef ég þarf að bera vitni, er ég beðinn um að sverja við biblíuna (drengskapareiður er valmöguleiki, en það þarf að biðja um hann sérstaklega, það er bara litið svo á að þú sért kristinn um leið og þú stígur þar inn fyrir dyr).
Persónulega vil ég alfarið leggja niður skipulagða trúarstarfsemi þar sem ég tel að hún geri meira slæmt en gott. En þar sem það er ólíklegt og fólki er frjálst að trúa hverju sem það vill, þá vil ég að minnsta kosti að ríkið komi það hvergi nærri og að trúfélög séu algerlega sjálfstæð.
Undirskriftir með öðru en nafninu manns eru hallærislegar.
Þú hefur mjög rangt fyrir þér með það að það að skrá sig úr Þjóðkirkjunni jafngildi affermingu.
Þjóðkirkjan er aðeins ein af ótal kirkjum heimsins, hún til heyrir Evangelíska Lúterska söfnuðinum sem er ekki með stærstu kirkjudeildum heimsins.
Það sem þú staðfestir í fermingunni er ekki að þú sérst í einu og öllu sammála guðfræðilegum kenningum Evangelísku Lútersku kirkjudeildarinnar,
heldur að þú ætlir að hafa “Jesús Krist sem leiðtoga lífs þíns”, eins og það er orðað í fermingarheitinu.
Trúnaður við Evangelísk Lútersku kirkjuna kemur hvergi fram í fermningarheitinu og mjög algengt er að fólk segi sig út Lútersku kirkjudeildinni til að ganga til liðs við aðra kristna söfnuði. Kannski ekki svo mjög algengt hér á Íslandi, þó ég viti sjálf um nokkrar manneskjur sem gerðu það til að gerast kaþólikkar og líka nokkrar sem gengu í Hvítasunnukirkjuna. Hvorugt myndi teljast að “affermast” þar sem kaþólikkar og hvítasunnumenn samþykkja það sem fermingarheitið stendur fyrir. Í Bandaríkjunum er mjög algengt að fólk yfirgefi Lútersku kirkjuna fyrir einhverja aðra kirkjudeild sem á meira sameiginilegt með þeirra persónulegu túlkunum á Biblíunni, enda er Lúterska kirkjan í Bandaríkjunum mjög lítil og óvinsæl og hundruðir annara kirkjudeildna að velja úr svo allir ættu að geta fundið eitthvað sem á við þeirra eigin sannfæringu, Lúterska eða ekki.
Þú hefur kannski sjálfur ákveðið að þú sérst affermdur og það er þá þitt mál hvernig þú skilgreinir það. En það er engin afferming að skrá sig úr kirkjudeild og er orðið mjög algengt að gera slíkt. Alla vega eru nýkaþólikkarnir sem ég þekki ekki “affermdir” í hjarta sínu þó kaþólska kirkjan ætti betur við trúarskoðanir þeirra.
0
13 ára krakkar eru ennþá börn og mér finnst ekki vera hægt að halda þau ábyrg fyrir einhverjum yfirlýsingum sem þau gefa þá. Mér finnst þess vegna sem fermingin sé marklaus, enda margir sem fermast fyrir gjafirnar og margir sem verða seinna trúlausir þó þeir hafi trúað þegar þeir voru börn. Mér finnst að það ætti ekki að vera hægt að skrá börn í trúfélög fyrr en þau eru nógu gömul til að gera það sjálf og fermingin ætti að miðast við það líka.
Hins vegar er það rétt að þegar maður er búinn að fermast, þá er ekki hægt að taka það til baka þó maður skipti um skoðun en það geta allir sagt sig úr kirkjunni og breytt um trú eða trúfélag.
0
Því má bæta við að það er reyndar engin ferming í Biblíunni svo hún er seinni tíma uppfinning.
Ég er frjálshyggjumanneskja og vil trúfrelsi.
0
Ég hef heyrt að fermingin hafi verið fundin upp til að veita prestunum aukatekjur. Margir kristnir söfnuðir hafa ekki fermingar og tíðka ekki barnaskírnir heldur hafa skírn þegar fólk hefur aldur til að velja það sjálft.
0
er þá kannski eina leiðin til að affermast með því að taka einhvern annan sem “leiðtoga lífs síns”
t.d. sjálfan sig…
ok ég geri það hér með og er ánægður með að loksins hafa affermst
0
Fer eftir hvernig þú skilur “leiðtogi” lífs míns.
Leiðtogi merkir einhver sem vísar þér leið, er þér á einhvern hátt fyrirmynd eða vegvísir.
Leiðtogi þarf ekki að merkja grimmur harðstjóri, einhver sem þarf að hlýða eða neitt slíkt.
Leiðtogar hafa svo sína eigin leiðtoga, og leiðtogar eru misjafnir eins og aðrir.
Leiðtogalaus er enginn sem tekur þátt í nútíma samfélagi yfirhöfuð og enginn, enginn og þá meina ég ALLS ENGINN kemst áfram í lífinu bara á eigin verðleikum.
Þess vegna verð ég að kveðja núna og grípa gæsina,
mundu að það er alltaf einhver til að hjálpa þér,
bara ef þú ert, eins og Coldplay sögðu, ekki fyrstir “a part of the cure” og ekki “a part of the …….”?
Hvers vegna myndi annars neinn nenna þessu? ;)
0
“Leiðtogalaus er enginn sem tekur þátt í nútíma samfélagi yfirhöfuð og enginn, enginn og þá meina ég ALLS ENGINN kemst áfram í lífinu bara á eigin verðleikum.”
hmm þetta er náttúrulega punktur sem má rökræða til enda tímans, en ég læt mér það nægja að reyna hvað ég get að komast ekki áfram á verðleikum annara….
það er líka stór munur á því að viðurkenna góð verk annarra og taka móralska punkta frá öðrum í umhverfi sínu og hafa einhvern af leiðtoga lífs síns….
ég reyni allaveganna bara að móta mér dýnamíska hugmyndafræði og styðst við hana í mínu daglega lífi… er amk þeirrar skoðunar að það er afskaplega líklegt til mistaka að taka sér einhverja utanaðkomandi persónu [hugmyndafræði] sem eitthvað sem stýri lífi manns…
allaveganna hefur mér fundist ekki mikið til koma til fólks sem ofurselur sig fastmótaðri hugmyndafræði, hvort sem um stjórnmála, trúar eða aðra hugmyndafræði er að ræða…. það verður oftast þrjóskt og ósveiganlegt og oftast endar það í því að hugmyndafræði þess vinnur á móti því
er þó ekki að segja það að ég flip-floppi á prinsipum hægri vinstr, heldur lít á svo á að mar þurfi að vera opin, og alltaf tilbúin til að gagnrýna og taka gagnrýni á ástæður mínar fyrir gjörðum mínum…
þetta er alveg orðið vel off topic hérna
0