Jæja, þá finnst mér nú vera kominn tími til að leggja niður þessa brjáluðu öfga-hægri stjórn í landinu sem við lifum í. Ég sé landið fara norður og niður á næstu árum eða áratugum ef við höldum áfram að styðja sjálfstæðisflokkinn - þeir eru glæponar sem synda í peningum kapítalismans og styðja það að ríkari verði ríkari og fátækir verða fátækari. Það má minna á að undir stjórn sjálfstæðisflokksins og DAVÍÐ ODDSONAR hefur t.d. lyfjaverð hækkað um hversu mörg prósent?? Held það hafi verið um 60% !! Ég þekki astmasjúklinga sem þurfa núna að borga 50% meira fyrir lyfin sín en áður og þeir sem verða alvarlega veikir verða að borga í lengri, lengri tíma ef ekki alla sína ævi allan þann kostnað við það að vera fastur inni á sjúkrahúsi. Hvað atvinnu varðar þá er ég alveg HANDVISS um að það sé til betri leið til þess að skapa atvinnu en að sökkva landinu í mold og drullu, skemma fallegt landslag, skemma það sem Ísland er ALLRA ALLRA frægast fyrir: Óspillta náttúru! Og svo ég minni nú á að túrisminn er núna orðin önnur mikilvægasta atvinnugreinin á LANDINU!! Einmitt vegna landslagsins, þið kapítalismarnir viljið skemma það??? Viljið þið ekki bara sturta fullt af olíu í sjóinn fyrst?????

Svo vil ég líka minna á þá ákvörðun sem Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson töldu sig eiga rétt á að taka fyrir hönd allra landsmanna: Að styðja Bandaríkjamenn hvað varðar stríðið í Írak? Þeim fannst réttlætanlegt að ráðast á blásaklaust fólk og myrða það til þess að Bandaríkjamenn geti rænt olíulindum Íraks og notað Saddam Hussein sem “ástæðu” fyrir stríðinu, þegar ALLIR vita að Bush er brjálaður MADMAN!! Er réttlátt að Davíð O. og Halldór Á. takið þessa ákvörðun fyrir Ísland??? 80% af okkur eru á móti stríðinu!!! Hvers konar menn eru þetta?? Hvers konar lýðræði er þetta??? Það er svo MIKIÐ margt sem ég get sett út á þessa blessuðu íslensku ríkisstjórn, mér finnst þeir standa sig MJÖG MJÖG illa… það verður að vera réttlæti í landinu, það verður að vera hægt að lifa í þessu landi án þess að hlaða á sig skuldum við það eitt að LIFA!! Sjálfstæðismenn vilja halda í þá stefnu sem þeir eru með núna og hún hefur leitt okkur langt af þeirru GÓÐU braut sem við vorum á áður fyrr…

Ég er láglaunamanneskja.. ég á bíl og ég þarf ekki að borga leigu… ég er í skóla líka en er með 80.000kr á mánuði. Ég kaupi mér aldrei nein föt og fer aldrei á fyllerí því ég hef ekki efni á því… ég er alltaf orðin blönk í lok mánaðarins… Hvað myndi verða um mig ef ég myndi fara að leigja???? Ég meina, ég þarf nú þegar oft að láta það bíða í einn mánuð að fara til læknis/tannlæknis/láta laga bílinn vegna lágra launa minna… hef bara efni á bílnum, bensíninu og mat…

ÉG VIL AÐ LÍF FÁTÆKRA BREYTIST… FÁTÆKT HEFUR AUKIS MJÖG MJÖG MIKIÐ UNDIR STJÓRN SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS!

ÁFRAM VINSTRI GRÆNIR!
ÁFRAM RÉTTLÆTIÐ!