Núna segja allir ojjjjjjj því að ein grein enn um Írak en þessi er aðeins frábrugðin hinum.

Ég var að leita mér að einhverju skemmtilegu til að horfa á í einni af þessu fjölmörgu spólum sem ég hef tekið eitthvað upp á þegar að ég rakst á 10 mín áróðursmynd gegn Saddam Hussein.Hún var eldgömul og sýnt var í henni heimsókn hanns í einhvern bæ í Írak.

Áður en að hann kom löbbuðu hermenn í öll húsin til að skipa fólkinu að koma út og aðhylla Saddam Hussein,allir áttu að koma út,klappa og lúta fyrir honum þegar að hann kom inn í bæinn hvort sem að þeim líkaði betur eða verr.
Þarna rétt hjá var skóli þar sem 16 ára strákar og stelpur voru í prófi.Öll löbbuðu þau út og stilltu sér upp fyrir framan skólann og þegar að Saddam kom inn í bæinn fór hann fram hjá krökkunum og á meðan tók einn af hershöfðingjum hanns eftir því að 3 strákar voru ekki að klappa heldur horfðu bara á hann.
Hershöfðinginn tók þessa 3 stráka út úr hópnum og aðra 2 sem ekkert höfðu gert af sér skipaði þeim að leggjast niður og lúta höfði og þar voru þeir skotnir allir 5 í hausinn fyrir framan allan bæinn.Líkin voru hengd upp í staur, eldur borinn að þeim og þau voru brennd til ösku.Hjá þessum staurum þar sem líkin voru brennd var síðan gerð risastór mynd af Saddam.

Svona er fólkinu haldið í heljargreipum óttanns og það er matað af því alla daga hvað Bandaríkinn eru slæm og að allt hið illa sé komið frá þeim.
Nú eiga Bandaríkin og Bretland í stríði við Írak og eftir að ég sá þessa mynd er ég í engum vafa um mikilvægi stríðsinns.Bandaríkjamenn eru að fórna lífi sinna manna og kvenna til þess að fólkið í Írak geti lifað betra lífi því Írak gæti verið mjög auðugt ríki en á meðan að Saddam Hussein var við völd fór allur peningurinn sem Írak er að græða af olíunni í að byggja hallir handa sér og synum sínum og í að efla þennan ömurlega her Íraka.Mennirnir sem deyja í þessu stríði eru bara smá brot af þeim sem er bjargað með því að drepa Saddam.


TheEagle