Þetta fjallar kannski ekki beint um hlutverkaspil, en ég ákvað að setja þetta hérna samt vegna þess að markhópurinn er sá sami.

Ég var í gær að uppgötva nýja grínþætti sem bera nafnið í titli þráðarins. Þeir eru sýndir á fimmtudögum á Comedy Central stöðinni, og það er búið að senda út fjóra þætti. Þættirnir fjalla um uppreisnarhetjuna Kröd Mändoon og mislukkaða félaga hans, og baráttu þeirra við illa keisaraveldið. Hver fantasy klisjan eftir aðra er tætt í sundur í yndislegu háði. Mæli eindregið með að fantasynördar kynni sér þessa snilldar þætti, sem má nálgast á netinu með aðstoð Google Frænda.

Bætt við 24. apríl 2009 - 20:38
Því má bæta við að aðalþrjóturinn Chancellor Dungalor er leikinn af Matt Lucas úr Little Britain. John “Gimli” Rhys-Davies fer líka með hlutverk seinna í þáttunum, hefur ekki sést ennþá.
Peace through love, understanding and superior firepower.