Ókei, ég var að lesa (fyrirgefið þessa lygi, ég var á kafi í) 4th ed. DnD bókunum mínum og rakst á soldið skemmtilegt og datt í hug að koma þessum þræði af stað.
Það sem mér datt í hug var að sjá hvort fólk gæti sett fram uppbyggingu á kalli sem fókusar bara á einn hlut og sýnt hversu “extreme” það verður.

Til að gefa hugmynd um hvað það er sem ég meina koma hérna tvö dæmi:

[REACH]
Minotaur (Dragon #369) eða Goliath (PHB2).
Racial Paragon Path: Minotaur ‘Beastblooded’ eða Goliath ‘Stoneblessed’ (Báðir PP's gefa +1 reach).
Epic Destiny: Eternal Defender (Martial Power) sem gefur á lvl 24 +1 reach í viðbót.

Þarna er kominn defender sem er með reach 2 (og getur notað vopn einu category stærra þökk sé Eternal Defender), ef notað er reach vopn þá erum við að tala um reach 3 í heild.

Þessi getur bara gert oppertunity árásir alveg upp við sig en hann getur ráðist á langt frá.

[CHARGE]
Half-Orc Barbarian
Hide Armor
Speed: 6
Half-Orc racial: +2 speed when charging
Barbarian at-will: Howling Strike (can move +2 extra squares as part of the charge)
Swift Panther Rage: +2 power bonus to speed
Feat: Fast Runner (+2 to speed when running or making a charge)

Þetta gefur 14 reiti í heild sem hann gæti farið í charge, og ég hef ekkert skoðað hvort það sé eitthvað meira sem getur gefið auka reiti í charge.
——————————-

Allavega þarna eru tvö dæmi og ég vona að það sé auðvelt að skilja þetta… endilega breytið því sem ég setti fram, alltaf gaman að sjá hvað aðrir gera…

Það skal tekið fram að þetta er bara upp á gaman gert til að sjá hvað það er hægt að ýta einum hlut mikið í öfgar…

Að lokum vil ég líka taka fram að ég sletti í ensku og ég skammast mín ekkert fyrir það :p