Hvernig er það, hefðu menn áhuga á að taka arena leiki hér á huga?

Það væri lítið mál að búa til kubb með slíkum bardögum. Það er tiltölulega einfalt að halda utan um slíkt.

Til að byrja með eru allir á 1. leveli og fyrir hvern unnin bardaga fær maður lvl andstæðingsins x 1000 xp/gp í verðlaun. Taparinn fær 25% af sigurlaununum.

Í upphafi hvers bardaga pósta báðir þátttakendur character sheetum og þau eru síðan yfirfarin af dómaranum áður en bardaginn hefst. Hægt er að semja um prep-rounds osfrv. Dómarinn sér um teningaköst. Hægt er að notast við die rollera á netinu, til að tryggja sanngirni.

Dæmi um character creation reglur:

Aðeins PHB leyfð.
32 point buy.
Max standard gold.

Hvað segið þið? Hafið þið áhuga?

Það væri hægt að setja upp sýnidæmi um bardaga, svona til að sýna hvernig þetta gengur fyrir sig.