Jæja, fyrst það er svo lífleg umræða um D&D hérna þessa dagana datt mér í hug að skella fram einni pælingu í viðbót. Í PHB eru 11 base classar, en nú er svo komið að það hefur verið gefið út töluvert af aukaefni með nýjum klössum. Ég verð að viðurkenna að í mínum spilahóp hefur enginn ennþá “þorað” að prófa neinn þeirra (nema 3.0 psion og psychic warrior upp á annað eða þriðja level - ekki nóg til að mynda sér skoðun), svo ég spyr ykkur:

Hverja af þessum klössum hafið þið prófað eða séð í spilun, og hvernig finnst ykkur þeir? Þá er ég að tala um bæði hvort þeir séu skemmtilegir í spilun og hversu öflugir þeir eru í samanburði við PHB classana, ss. balance. Takið fram úr hvaða bók viðkomandi class er úr þegar þið fjallið um hann, svo við hinir vitum hvar er hægt að nálgast þá :)
Peace through love, understanding and superior firepower.