Sælinú.
Ég fór fyrir tilviljun að velta því fyrir mér í gær hvort það sé til einhvers staðar eitthvað sæmilega nothæft, ókeypis downloadanlegt forrit til að skapa fljótleg og þægileg dýflissukort? Ég reyndi að gúgla það en fann í fljótu bragði ekki neitt merkilegt. Ég veit vel að það er hægt að hand-teikna kort en það getur verið seinlegt og stundum vill maður breyta einhverju eftir að maður er byrjaður og það getur verið vesen… þið skiljið hvað ég meina. Svo ef einhver ykkar veit um eitthvað sem er brúklegt í þessum geira þá skiljið endilega eftir vísbendingu um hvar ég gæti nálgast svoleiðis.
Peace through love, understanding and superior firepower.