Það vill nú þannig til að ég var að spila áðan. Ævintýrið byrjaði í fangelsi, þar sem allir sátu inni. Ég, elfen ranger (female) sem var tekin fyrir að drepa mann fyrir að sparka í hund, human fighter (male) og half-orc fighter (male) sem höfðu lent í slag og að lokum human clerik (female) minnti þó nokkuð á “American McGees Alice” en hún hafði predikað (heilaþvegið) innanbæjar án leyfis. Skyndilega opnuðust fangaklefarnir og við hlupum út, alls laus, enda hafði allt verið tekið af okkur nema rétt svo fötin okkar. Við hlupum inn gang og komum inn í sal með 3 hurðum. Bak við eina hurðina var gangur en þar sem allt var á floti leist okkur ekkert á það. Ég reyndar fékk þá snilldar hugmynd að láta smá hálm detta í vatnið og dundaði mér smá stund í að horfa á hálminn fljóta rólega í burtu. Half-orcinn snéri við og í dyrnar beint á móti. Ég hljóp strax á eftir honum, en um leið og við opnuðum dyrnar og ruddumst inn í herbergið, hrundi undan okkur gólfið. Við duttum í djúpa holu fulla af beinum og spýtum og það batnaði ekkert þegar það komu kóngulær og byrjuðu að bíta okkur. Ég gerði heiðarlega tilraun, sem ranger, að heilla þær svo þær myndu ekki bíta mig, en þær ulluðu bara á mig og héldu áfram þessari iðju sinni. Half-orcinn þreif upp kylfu og kramdi eina sem var að narta í legginn á honum. Ég gerði hið sama og þrumaði eina í klessu um leið og ég kallaði á mannverurnar þarna uppi, sem ég hafði auðvitað ekki hugmynd um hvað hétu. Þau kíktu svona á okkur, flissuðu aðeins, svo ég klifraði bara upp með eina könguló hangandi á fætinum mér. Half-orcinn var orðinn leiður á að lemja sjálfann sin í fótinn því hann ætlaði aldrei að hitta eina köngulónna sem hékk á honum svo hann flaug bókstaflega upp vegginn og skildi köngulónna eftir þrumulostna. Þegar ég var kominn upp, hékk köngulóin ennþá á mér nartandi, ég reyndi að slá hana en lamdi mig í löppina svo ég fleygði mér bara í jörðina og kramdi hana þannig. Við ákváðum að reyna við þriðju dyrnar en þær voru læstar svo half-orcinn henti sér á þær með miklu afli, en allt kom fyrir ekki. Þá tókum við eftir því að í herberginu þar sem gólfið hrundi, var hægt að fikra sig meðfram veggjunum og að hurð sem var í hinum enda herbergisins. Við gerðum það og komum inn í nokkurs konar gang. Half-orcinn reyndi að rífa niður kyndlana með þeim afleiðingum að hann fann leynihurð. Þar fann hann sér brynju og vopn handa okkur öllum. Sjálfur fékk hann sér chain mail og Orc double axe, mér gaf hann long sword, clericinum gaf hann Heavy Pick og human fighterinn fékk falchion. Svo fann hann bandid armor í kistu, gaf mér það en þar sem það var alltof lítið á mig (stuttlungastærð), hirti ég það bara í von um að geta selt það. Við héldum áfram, vel vopnuð, og inn í herbergi með stóru altari í. Við hliðina á altarinu var spjót með haus á. Half-orcinn tók hausinn skoðaði hann vel ásamt spjótinu en henti svo hvoru tveggja. Það voru hurðir bæði til hægri og vinstri og við fórum til hægri. Þar komum við inn í herbergi með einu rúmi og skáp í. Half-orcinn fór strax að gramsa í rúminu og fann hendi undir því. Ég opnaði skápinn og fann heilt fjall af kjólum! Ég hirti nokkra og clericinn líka, þar sem við vorum female, en þegar half-orcinn og human fighterinn komu líka og klæddu sig í sinn hvorn kjólinn fór okkur ekkert að lítast á blikuna. Half-orcinum fannst hann ekki líta nógu hryllilega út, heldur fór hann að sulla á sig blóði úr hendinni. Hann stakk hendinni í bakpokann um stund, en lét svo af freistingunni á að geta pikkað í fólk með svona hendi, svo hann henti henni. Þegar við vorum búin að hirða nokkra kjóla öll sömul, hakkaði half-orcinn skápinn í spað ásamt afganginum af kjólunum. Við röltum svo öll út, voðalega fín í kjólunum okkar, og inn um dyrnar vinstra megin, þar sem þurfti að draga niður vindubrú. Þá komum við inn í gang fullan af súlum. Ég sá kertastjaka og greip hann og skellti í bakpokann minn, en áttaði mig á síðustu stundu, að kannski væri það ekki sniðugt að stinga fjórum logandi kertum ofan í bakpokann minn svo ég rétt náði að slökkva á kertunum áður en það kviknaði í bakpokanum mínum. Þá stoppuðum meðan clericinn healaði mig og half-orcinn eftir köngulóabardagann og áður en að við vissum af, stukku fjórir gnolls á okkur, ekkert undrandi að sjá tvo male fighters í kjólum. Þeir voru með glaives og byrjuðu á að pota í human fighterinn og særa hann en hittu engann annan, svo ég fékk tækifæri á að stúta einum. Þeir fengu að gera aftur og rotuðu human fighterinn með því að draga short sword úr slíðrum og þruma flata endanum framan í hann. Þá náði half-orcinn að særa annan. Ég drap þá einn enn og clericinn stakk annan með Heavy Pickinu til ólífis. Half-orcinn kláraði þetta svo og við vorum öll búin að óhreinka fínu kjólana okkar í gnolla blóði! Af gnollunum hirtum við leather armor, short sword og glaives. Human fighterinn raknaði brátt úr rotinu og sagði okkur einhverja undarlega sögu um að við hefðum rölt áfram og rekið augun í 3 hálfvita sem sátu á gólfinu og ráku við sér til gamans. Einn þeirra hefði litið á okkur og sagt “leiktæki!” Við horft á þá og hann sagt “tækileik”. Þá átti hálfvitinn að hafa litið á hann og sagt “neeei.. prumpi leik” og þeir flissað. Við héldum okkur í hæfilegri fjarlægð frá honum eftir það. Við gengum út og sáum þar bæ sem stóð undir árás hersveit orca. Þá þurfti einn spilamannanna að fara svo ævintýrið náði ekki lengra það kvöldið.
Takk fyrir það þið sem nenntuð að lesa þetta.. ég vona að þið hafið notið þess!
Silla85