Á spjallborðinu warhammer.is/spjall er nú búið að bæta við spjalli fyrir spunaspil annars vegar og Vampire the Eternal Struggle og Legend of the Five Rings kortaspilin hins vegar.

Fyrir þá sem ekki vita af því þá er warhammer.is/spjall spjallborð í eigu Nexus. Spjallborðið hefur hingað til verið aðallega ætlað Warhammer spilunum en nú er verið að útvíkka hlutverk þess og búast má við frekari viðbótum þegar fram líða stundir.

Við vonumst til að sjá sem flesta á nýja spjallinu, en ath. að innskráning getur tekið allt að tvo daga þar sem umsjónarmenn þurfa að samþykkja allar nýskráningar eins og er.

R.