Sælt veri fólkið

Jæja dagsetningin er komin. Hún er 5-6 Febrúar.. gæti samt verið breyting á því þar sem Fizban ætlar að athuga með sunnudaginn.

En við þurfum að vita með skráningu á Stjórnendum.

Þeir sem vilja stjórna senda skilaboð á tmar með eftirtöldu innihaldi:


Nafn.
Símanúmer.
Aldur stjórnanda.
Kerfi.
Lýsing á ævintýri (nafn ef það hefur verið gefið út).
Fjölda spilara og viðmiðunaraldur.
Reykir/reyklaus.
Tímabil.
Hefurðu stjórnað á móti áður?

Dæmi um skráningu:

Nafn: Jón Jónsson
Aldur: 23
Kerfi: D&D 3.5
Lýsing á ævintýri/nafn: The Sunless Citadel
Fjöldi spilara og viðmiðunaraldur: 6, +16 ára
Reykir/Reyklaus: Reyklaus
Tímabil: Frjálst
Hefurðu stjórnað á móti áður: Nei.

Síðan þegar við erum komnir með ákveðin fjölda af stjórnendum þá skráum við spilara.

Þannig að það er mánuður til stefnu og allir ættu að hafa nógan tíma til að plana þessa helgi og dusta rykið af ævintýrunum… eða búa til nýtt.