Hvað hefur gerst fyrir manninn! Hann hefur bara spilað fjóra leikiog þurftu Denver að skipta Mcdyess fyrir hann! Hefur hann lent í einhverjum hræðilegum meiðslum?
Hér er Ernie Els að taka við Johnnie Walker bikarnum sem hann vann fyrr í dag. Ernie setti nýtt met á 72 holum þegar að hann lék á -29 undir pari. Ernie setti sama met á US PGA fyrr á árinu þegar hann vann mót á -32 undir pari.
Þetta er Ernie Els eða “Easy” eins og hann er kallaður. Á myndinni er hann að taka við British Open bikarnum. Easy er núna að keppa á Johnnie Walker mótinu á Evrópsku mótaröðinni og leiðir með 9 höggum eftir 54 holur (er samtals á -23 sem er nýtt met). Þegar Els vinnur mótið þá verður það hans 5. sigur í ár!