Þetta er mynd af Kasco K2K Utility E-spec Woods en hún er einmitt ein ef ekki sú vinsælasta Utility Club í Bandaríkjunum. Skrítin, en samkvæmt mörgum kylfingum sem hafa verið spurðir þá er hún alveg að virka.
Þessar kylfur munu vera í öðru sæti (á eftir Callaway Golf Steelhead X-14) á óskalistanum, þegar ég fæ mér alveg nýtt sett í sumar (að undanskildum pútter).
Ísland sigraði Möltu, 1:4, í undankeppni HM í knattspyrnu karla. Malta skoraði fyrsta mark leiksins en Tryggvi Guðmundsson og Helgi Sigurðsson svöruðu rétt fyrir leikhlé. Undir lok leiksins bættu Eiður Smári Guðjohnsen og varamaðurinn Þórður Guðjónsson við mörkum.
“Það er enginn sem getur stöðvað mig” sagði Shaq eftir að hafa skorað 32 stig fyrir Lakers í sigurleik gegn Portland í úrslitakeppninni. Lakers eru yfir 2-0
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..