Buffy á Popptíví Undanfarna daga hefur mikið verið talað um að Popptíví muni sýna Buffyþættina - hugsanlega á þriðjudögum. Einhverjir hafa víst séð auglýsingar o.þ.h. um þetta efni en eftir því sem ég best fæ sé hefur þetta ekki verið mikið auglýst. Ég bið ykkur því að nota þetta tækifæri til að koma á framfæri þeim upplýsingum svo og skoðunum sem þið hafið. Er það alveg öruggt að þættirnir verða sýndir? Er dagsetningin frágengin? Hvaða þáttaröð verður sýnd? Verður byrjað á byrjuninni eða sýnt þar sem frá var horfið á Stöð 2? Eru margir sem hafa áhuga á að horfa á þættina á þessari stöð og hversu margir hafa aðgang að henni? Endilega látið í ykkur heyra.
——————