Ég vaknaði um 12 leytið í morgun. Myglaðri en osturinn aftast í ísskápnum hjá mér. Stend upp, nenni ekki að klæða mig, og eins og hver annar tölvunörd með alla vinina í fríi eitthverstaðar annarstaðar, sest ég í tölvuna.

Labbar ekki mamma inn. Réttir mér eitthvað bréfa dæmi, sé ekkert strax hvað það er.. Nei nei, 10-pack of smokkum.

Það fyndna er að hún veit bara að ég er með stelpu. Hún hefur ekki einu sinni séð okkur kyssast, hvað þá labbað inn á okkur að gera eitthvað nasty. Hefur bara séð sogblett á hálsinum á mér og svo er bara hent í mann smokkum..
En ekki kvarta ég. Ódýrara fyrir mig.

En já, þetta var frekar “wtfmate?!”legt, en samt á sama tíma eitilmagnað, því þetta var eins og svona ósagt samkomulag. Einn smokkur hefði sagt “Jájá, þú mátt prófa þetta.” ÞEtta voru 10 smokkar. Sérstaklega gerðir til að auka ánægju.. Það segir einfaldlega “Þú mátt ríða þangað til hann dettur undan þér - Og það á að vera gott.”

O jæja.