Ég er ótrúlega ósátt við Rúv :/ Bara að taka endan af keppninni af! Það voru 10 mínútur eftir og við fengum ekki að sjá þær!

Vissulega eru kosningarnar hér á Íslandi mikilvægar, en var ekki hægt að láta fólk hlusta á fyrstu tölurnar í útvarpinu og skipta síðan yfir á kosningarnar strax eftir Eurovision? Mér finnst þetta fáranlegt :/

Væri líka hægt að setja tölurnar neðst á skjáinn, eins og hvort ríkistjórnin sé fallin samkvæmt fyrstu tölum ofl.

Allavegana var ég ekki sátt með þetta :/ En þið?

..og ein spurning svona að lokum, hvor hefði átt að vinna Serbar eða Úkranía?

Verðið að velja milli þessara tveggja landa! :)
An eye for an eye makes the whole world blind