Uppi hafa verið raddir í dag að sjónvarpsstjarnan Silvía Nótt verði dæmd úr keppni vegna þess að lag hennar sem flutt verður n.k. laugardag komst í spilun á netinu. Sagt er að lagið sé mjög flott og þykja mörgum það vera synd ef það fær ekki að taka þátt.

Vegna þessa þykja mörgum það vera skynsamlegsta ákvörðunin að dæma lagið úr keppni því að það er ósanngjarnt gagnvart keppinautum hennar að lag hennar hafi fengið meiri auglýsingu heldur en hin lögin,

Við verðum bara að bíða þangað til á laugardag og sjá hvort þessi umdeilda stjarna eigi eftir að stíga á svið.
- Er gaman af biluðu bulli? Skoppaðu þá eins og fiskur í algjöru rugli!!